26.06. Ekið frá Hafnarfjarðarkirkju klukkan 05:15 og flogið með flugi Flugleiða FI-590 klukkan 08:00 frá Keflavík til Milano. Lent þar klukkan 14:45. Þaðan er ekið að bænum Stresa við Maggiore vatnið, sem er næststærsta stöðuvatn Ítalíu og liggur bæði í Ítalíu og Sviss. Þar gistum við næstu fimm nætur á Hótel Regina Palace, sem er meira en 100 ára gamalt glæsihótel, sem hýst hefur kóngafólk og auðmenn og leikara og listamenn allt fram á okkar daga. Kvöldverður á hóteli.
27.06. Dagsferð á Maggiore-vatni. Farið verður á siglingu á vatninu til Borromeo eyjanna og og tekið land á helztu eyjunum. Kvöldverður á hóteli.
28.06. Frjáls dagur í Stresa. Tilvalinn til þess að eyða í göngu meðfram vatninu, sitja á kaffihúsi og kynnast heimamönnum. Einnig að nota aðstöðuna við hótelið okkar, en þar er bæði úti- og innisundlaug, sundlaugabar, gufuböð o.fl. Kvöldverður á hóteli
29.06. Um morguninn er farið í skoðunarferð til Taranto garðanna, sem gerðir voru af Skotanum Neil McEarcharn fyrir bráðum 80 árum síðan og þykja einstaklega fagrir. Síðdegið frjálst í Stresa. Kvöldverður á hóteli.
30.06. Sveitaferð. Ekið upp Ossoladalinn til borgarinnar Domodossola og síðan farið í vín- og matarsmökkun hjá ungum bónda og bragðað á afurðum héraðsins. Kvöldverður á hóteli.
01.07. Brottför frá hóteli fyrir hádegi og ekið til Mílanó. Þar förum við í gönguferð, þar sem litið verður á helztu kennileiti s.s. óperuhúsið fræga la Scala og Dómkirkjuna. Síðan verður gefinn góður frjáls tími til að skoða sig um í þessari næststærstu borg Ítalíu. Haldið klukkan 19:30 út á flugvöll og flogið heim klukkan 23:00 með FI-593. Lent í Keflavík klukkan 01:15. Ekið til Hafnarfjaðar
Áætlað verð: 220.000,-
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi, ½ fæði (morgunverður og kvöldverðir), allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu, sigling á Maggiorevatni, akstur milli Hafnarfjarðar og Keflavíkurflugvallar og íslensk fararstjórn.
Aukagjald fyrir einsmannsherbergi: 69.700,-
Í öllum ferðum má gera ráð fyrir einhverjum göngum. Farþegar þurfa því að geta komizt leiðar sinnar hjálparlaust, eða útvega sjálfir þá aðstoð, sem þeir kunna að þurfa. Almennt eru gönguleiðir ekki langar, nema þær séu valkvæðar.