21.11. Farið með rútu frá Hafnarfjarðarkirkju 4:30. Flogið til Frankfurt með FI-520 kl. 07:25 og lent þar klukkan 12:05. Ekið til Trier, þar sem gist verður næstu 4 nætur á Hotel Ibis Styles, er vel staðsett hótel í miðbænum. Sameinginlegur kvöldverður.
22.11. Farið í morgungöngu um miðbæ Trier, sem er ein af elztu borgum Þýzkalands. Hún var stofnuð af Rómverjum fyrir meira en 2000 árum síðan og enn má sjá þar leifar af veru Rómverja. Að öðru leyti er dagurinn frjáls til þess að skoða sig um, líta í verzlanir o.sv.fr. enda miðborg Trier bæði lífleg og falleg. Svo má ekki gleyma jólamarkaðnum á aðaltorginu, sem einstalklega skemmtilegur. Sameiginlegur kvöldverður.
23.11. Haldið niður eftir Móseldal og litast um í vínræktarbæjunum þar. Meðal annars stanzað litið á jólamarkað og farið í vínsmökkun. Komið heim á hótel síðdegis. Sameiginlegur kvöldverður
24.11. Frjáls dagur í Trier. Sameiginlegur kvöldverður.
25.11. Haldið frá Trier til Frankfurt og flogið þaðan með FI-521 klukkan 13:05. Lent í Keflavík klukkan 15:55 Farið með rútu að Hafnarfjarðarkirkju.
Verð: 163.400,-
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi, morgunverður, kvöldverður, allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu, og íslenzk fararstjórn.
Aukagjald fyrir einsmannsherbergi: 48.300,-
Verð miðast við gengi og forsendur 20.12. 2024 og minnst 35 greiðandi farþega
Hvað aðra skilmála varðar vísast í “almenna ferðaskilmála” á heimasíðu okkar ferdir.is.
Í öllum ferðum má gera ráð fyrir einhverjum göngum. Farþegar þurfa því að geta komizt leiðar sinnar hjálparlaust, eða útvega sjálfir þá aðstoð, sem þeir kunna að þurfa. Almennt eru gönguleiðir ekki langar, nema þær séu valkvæðar