Dónársigling Húsmæðraorlofs Hafnarfjarðar 24.-30.07. 2025

24.07.    Ekið frá Hafnarfjaðarkirkju klukkan 04:30 og flogið með FI-532 frá Keflavík klukkan 07:20 Lent í München klukkan 13:05. Þaðan er svo ekið til borgarinnar Passau þar sem gist verður fyrstu nóttina. Passau er oft nefnd þriggja fljóta borgin því þar renna saman árnar Dóná, Inn og Ilz. Sameiginlegur kvöldverður á veitingastað.

25.07.    Um morguninn er boðið upp á stutta gönguferð um miðborg Passau en klukkan 14:00 en er ekið til smábæjarins Engelhartzell, Austurríkismegin við landamærin og innritast á skemmtiferðaskipið A-Rosa Flora þar sem gist verður næstu 5 nætur. Um kvöldið verður svo siglt af stað niður eftir Dóná. Allar máltíðir, auk drykkja, eru innifaldar á veitingastað skipsins meðan á siglingu okkar stendur.

26.07.    Um klukkan 14:00 er komið til Vínarborgar, höfuðborgar Austurríkis, sem eitt sinn var höfuðborg stórveldis og menningarborg að fornu og nýju. Þar bjuggu keisararnir af Habsborgarættinni lengst af og Vínarborg var keisaraborg allt til ársins 1918. Þar er því að finna glæsilegar hallir s.s. Schönbrunn og Hofburg sem voru sumar- og vetrarhallir keisaranna. Við förum í skoðunarferð, eyðum deginum í Vínarborg og fáum tíma til að skoða okkur um. Kvöldverður um borð, að venju, og siglt af stað um nóttina.

27.07.    Um morguninn er tekið land í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu. Gömul borg sem samt er þó yngsta höfuðborg Evrópu. Þar tökum við land klukkan átta um morguninn og gefum við okkur góðan stanz til að skoða gamla miðbæinn. Siglt af stað aftur um miðnætti.

28.07.    Siglt upp Dónárdalinn og gerður stuttur stanz í austurrísku bæjunum Krems og Melk. Ekki verður farið í land.

29.07.    Um morguninn er komið til Linz, þriðju stærstu borgar Austurríkis. Linz er falleg og gömul menningarborg þar sem gaman er að rölta um stræti, skoða mannlífið og líta inn á kaffihús til þessa að bragða hina einu sönnu Linzer Torte, eða linsuköku. Siglt aftur af stað klukkan 6 um kvöldið.

30.07.    Komið til Engelhartzell um morguninn og ekið þaðan til Münchenflugvallar. Þaðan fljúgum við með FI-533 klukkan 14:05 og lendum í Keflavík klukkan 16:00.

Áætlað verð á mann: 255.000,- í A-klefa, með glugga, á þriðja þilfari.

Áætlað verð á mann: 280.300,- í C-klefa, með frönskum svölum, á öðru þilfari.

Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar,gisting í tveggja manna herbergi í Passau með morgunverði og kvöldverði, gisting í tveggjamanna klefa með baðherbergi um borð, fullt fæði (morgun-, hádegis- og kvöldverðir) og allir drykkir um borð eru innifaldir meðan á siglingu stendur, allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu og íslenzk fararstjórn.

Aukagjald fyrir einsmanns herbergi/klefa er 79.500,-

Verð miðast við gengi og forsendur 06.11. 2024 og lágmark 35 greiðandi farþega.

Í öllum ferðum má gera ráð fyrir einhverjum göngum. Farþegar þurfa því að geta komizt leiðar sinnar hjálparlaust, eða útvega sjálfir þá aðstoð, sem þeir kunna að þurfa. Almennt eru gönguleiðir ekki langar, nema þær séu valkvæðar.

Varðandi aðra skilmála vísast í “almenna ferðaskilmála” á heimasíðu okkar ferdir.is.

Takmarkaður fjöldi klefa í boði.